12.02.1930
Efri deild: 20. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2420 í B-deild Alþingistíðinda. (3254)

78. mál, áfengislög

Jón Þorláksson:

Ég vil aðeins leiða athygli þeirrar n., sem fær þetta frv. til meðferðar, að því, að ég hygg, að komið hafi fram við meðferð áfengislaganna fleiri misfellur en þær, sem leiðréttar eru með þessu frv. Vil ég því beina þeirri áskorun til n., að leita upplýsinga um þetta hjá þeim, sem með lögin hafa farið, og bera fram þær leiðréttingar, sem þurfa þykir.