25.01.1930
Neðri deild: 5. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1124 í B-deild Alþingistíðinda. (329)

12. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Magnús Guðmundsson:

Ég hefi enga ástæðu til að vera óánægður með svar hæstv. fjmrh. Hann sagði, að þm. gætu fengið að sjá samninginn, og það vildi ég sérstaklega fá að vita. Ennfremur skýrði hann að nokkru frá efni samningsins, en út í það ætla ég ekki að fara nú. Ég gerði þessa fyrirspurn eigi aðeins mín vegna, heldur einnig vegna annara þm., því að ég þykist vita, að fleiri þeirra vilji sjá samninginn en ég.