06.02.1930
Neðri deild: 16. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í D-deild Alþingistíðinda. (3301)
37. mál, björgunar- og eftirlitsskip við Vestmannaeyjar
Flm. (Jóhann Jósefsson):
Ég vil, að því er snertir þessa fyrirspurn hæstv. dómsmrh., skírskota til þeirrar meginhugsunar, sem kom fram í símskeyti bæjarstj. í Vestmannaeyjum og sem var svarskeyti til stj. gegn uppsögn hennar á samningnum um björgunar- og eftirlitsskip við eyjarnar. — Þar tók bæjarstj. það fram, að hún vænti þess, að annaðhvort varðskipanna Óðinn eða Ægir annaðist björgunarstarfsemina og að hún gæti fellt sig við, að Hermóður hefði netjagæzluna.
Þegar ríkið byrjaði að inna af hendi björgunarstarfsemina við Vestmannaeyjar, hafði það aðeins tvö skip: Óðin og Þór; annað gott og hraðskreitt, en hitt gamalt og hægfara. Þrátt fyrir þetta sá stj. sér fært að annast björgunarstarfsemina og gerði það. Nú hefir ríkið til umráða tvö góð strandvarnarskip, auk Hermóðs; þess vegna taldi bæjarstj. í Vestmannaeyjum fært, að annað strandvarnarskipið hefði björgunarstarfsemina, en Hermóður netjagæzluna.
Þegar hæstv. ráðh. spyr, hvaða breyt. ég leggi til, að gerðar séu á því ástandi, sem nú er, þá er svar mitt það, að nú fyrri hluta vertíðarinnar, meðan allra veðra er von, eigi Óðinn að vera sem næst þessu svæði við eyjarnar; ég get varla búizt við öðru héðan af en að Hermóður annist netjagæzluna í vetur, ef til vill með einhverri aðstoð frá Óðni, ef á þyrfti að halda.
Hvað snertir framtíðina, þá hefi ég lýst yfir því, að réttast væri að endurnýja Þór, eins og gerist þegar skiptapar verða og vátryggingarupphæð skipsins er notuð til þess að endurbyggja skip til sama starfs og hitt hafði áður.
Ég vil í þessu sambandi benda á ummæli eftir merkum manni hér á landi, dr. Bjarna Sæmundssyni, sem standa í eftirmælum, er hann skrifaði eftir Þór. Þegar hann er búinn að lýsa afdrifum skipsins, lýkur hann máli sínu með þessum orðum:
„En upp af moldum hans vex vonandi bráðlega nýr og betri „Þór II.“, sem getur haldið áfram hinu virðulega starfi hins „látna“, sem varð björgunar-, mælinga- og rannsóknaskip“.
Þetta sýnir, að hinn merki maður, Bjarni Sæmundsson, hefir hugsað á sama hátt og ég og ýmsir aðrir gera í þessu máli, að í stað Þórs kæmi annað skip, er héldi uppi hinni sömu blessunarríku starfsemi hér við land sem Þór hefir gegnt í 10 ár.