06.02.1930
Neðri deild: 16. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í D-deild Alþingistíðinda. (3302)

37. mál, björgunar- og eftirlitsskip við Vestmannaeyjar

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Ég vil beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forseta, þar sem hér er um fjármál að ræða í þeirri þáltill., sem fyrir liggur, og farið fram á fjárframlög til kaupa á nýju skipi, hvort ekki þurfi að vísa henni til nefndar og hafa um hana tvær umr. í hvorri þd.; því að ég mun haga mér í umr. um hana eftir því.