10.04.1930
Neðri deild: 76. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í D-deild Alþingistíðinda. (3338)

363. mál, lækkun vaxta

Magnús Jónsson:

* Ég skal aðeins geta þess, að ég tók ekki eftir þessu í ræðu hæstv. ráðh., að hann hefði haft svona góð orð um till. En ef svo er, þá get ég vel gengið inn á að sitja hjá við atkvgr., því að sá eini, sem hefir kannske í höndum sér nokkra möguleika til að hafa áhrif á þetta, það er einmitt ríkisstj. Bankaráðið hefir enga möguleika, nema þann almenna peningamarkað. — Ég mun þess vegna sitja hjá við atkvgr.