05.04.1930
Neðri deild: 72. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í D-deild Alþingistíðinda. (3402)

154. mál, milliþinganefnd

Forseti (JörB):

Hv. 1. þm. Reykv. hafði alls ekkert loforð um það, að þetta mál skyldi ekki vera tekið fyrir fyrr en kl. 5. Hann hafði aðeins lofun fyrir því, að það skyldi ekki verða tekið til umr. fyrr en að loknu 9. máli. Það eru engin tök á því að bíða með þetta mál lengur, enda mæla engin skynsamleg rök fyrir því.