16.04.1930
Sameinað þing: 9. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í D-deild Alþingistíðinda. (3443)

496. mál, sæsímasambandið við útlönd

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég vil geta þess, að ég bað skrifstofustjórann í atvinnumálaráðuneytinu að athuga, hvernig formlegast væri að bera þetta mál fram, og hann áleit, að ætti að gera það með þeim hætti, sem hér er gert.