08.04.1930
Sameinað þing: 3. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í D-deild Alþingistíðinda. (3487)
153. mál, einkasala á steinolíu
Flm. (Haraldur Guðmundsson):
Ég skal ekki vera langorður. En ég get ekki stillt mig um að benda hv. 6. landsk. á, að dagskrártill. hans er á ærið ótraustum grundvelli reist. Hann taldi einkasölu aðeins forsvaranlega í alveg sérstökum tilfellum. Síðan kom hann nánar inn á það og taldi annað höfuðskilyrðið fyrir réttmæti steinolíueinkasölu, að olíuverðið væri óhæfilega hátt. Því næst segir hann, að samkv. upplýsingum frá hæstv. atvmrh. þá sé ekki um slíkt að ræða, og á því byggir hann svo dagskrá sína. En sá er nú gallinn á þessu öllu saman, að hæstv. atvmrh. hefir engar upplýsingar gefið viðvíkjandi þessu, enda hefir hann játað, að hann hafi enga persónulega sérþekking á þessu. Með þessu er því í rauninni fallinn grundvöllurinn undan till. hv. 6. landsk., og hefi ég því ekki fleira til hans að segja.
Hæstv. atvmrh. svaraði báðum fyrirspurnum mínum að því er mér skildist eindregið játandi. Hann taldi núverandi fyrirkomulag á steinolíuverzluninni hér á landi mjög óheppilegt, en að það skipti ekki miklu máli, hvort því yrði kippt í lag á þessu ári eða næsta. Ég vil nú mega ráða það af orðum ráðh., að hann og flokkur hans hafi í hyggju að kippa þessum málum í betra horf áður en langt um líður. En hvernig? Það væri óneitanlega fróðlegt að fá að heyra eitthvað um það, úr því að hæstv. ráðh. nú virðist horfinn frá einkasöluhugmyndinni. Hæstv. ráðh. gaf þá yfirlýsingu, að öll leppmennska væri ákaflega fyrirlitleg, en svo bætti hann við, að þau mál heyrðu ekki undir hans stjórnardeild. Þetta minnir ákaflega mikið á tilsvar eins af fyrrv. íhaldsstjórnarherrum, sem Tíminn hefir farið um hinum háðulegustu og hraklegustu orðum. Hann sagði : „Ég er ekki dómsmálaráðherra“. Mér þykir því hæstv. atvmrh. velja sér allóheppilegar fyrirmyndir. Annars held ég, að þessi leppmennska geti vel heyrt undir stjórnardeild hæstv. forsrh.