08.04.1930
Sameinað þing: 3. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 203 í D-deild Alþingistíðinda. (3497)
153. mál, einkasala á steinolíu
Ólafur Thors:
Hv. 4. landsk. sýnist ætlast til þess, að hér hefjist nú margendurteknar deilur um einkasölu. Það hafa nú verið haldnir fundir svo tugum skiptir um þetta mál, og hér í Nd. stóð ein slík umr. í tvo daga eða fleiri. Það mætti því æra óstöðugan, ef nú ætti að hefja slíkar umr. að nýju.
Hv. 2. þm. Reykv. sagði, að til þess að taka upp einkasölu á slíkri vöru sem þessari verði menn að hafa „svo ákveðna og sterka sannfæringu fyrir því, að hún sé nauðsynleg, að þeir vilji vinna til þess að leggja kvaðir á ríkissjóðinn og sjálfa sig“. Hafði hv. þm. þessa sterku sannfæringu, þegar hann sagði, að olíuverðið væri ekki hærra hér en með nágrannaþjóðunum? Ef þetta er rétt hjá honum, held ég, að hann sé sanngjarnasti olíukóngur heimsins. Það er fyrirfram vitanlegt, að af mörgum ástæðum er verðið hærra hér en annarsstaðar. Það er yfirleitt svo um flestar vörur. En ég get því ekki skilið, á hverju hann byggir þá sterku sannfæringu, að meiri nauður reki til að taka upp einkasölu á þessari vöru en öðrum nauðsynjavörum þjóðarinnar. Annars sagði hv. þm. nokkur orð, sem staðfestu það, sem ég sagði um hans flokk, að þetta væri skrípaleikur. Hann sagði, að hann vissi, að þessi till. yrði felld, svo sem áður hefði verið. Vitanlega verður hún felld, en því er þá verið að flytja slík mál?
Eins og hv. 1. þm. Skagf. tók fram, rann jafnaðarmönnum blóðið til skyldunnar. Hv. 4. landsk. beindi orðum sínum ekki til varnar flokksbræðrum sínum, heldur til varnar hæstv. stj., og þá einkum í garð hæstv. dómsmrh. Það er eins og vant er. Ef á þann hæstv. ráðh. er hallað, rísa sócíalistar upp og bera skjöldu fyrir hann. Landskjörið í sumar mun sýna, hvern ávöxt það hefir borið.
Hv. þm. Ísaf. sagði hér nokkur orð og lét sinn mikla róm gjalla yfir okkur í þessari hv. deild. Hv. þm. sagði, að það væri bezt að sjá heilindi okkar í þessu máli í því, hvort við greiddum þessari till. atkv. Hv. þm. veit vel, að ég og mínir flokksmenn getum ekki greitt henni atkv. nema við göngum á snið við sannfæringu okkar. Hv. þm. er í lófa lagið að sýna, hver heilindi hans eru í þessu máli, með því að hóta hæstv. stj. því, sem dugir, ef hún fylgir jafnaðarmönnum ekki í þessu máli.
Hv. 2. þm. Reykv. sagði nokkur orð út af vantrausti á stj. Það er ekki von, að Sjálfstæðisflokkurinn komi með vantraust á stj. vegna bankamálsins, sem hún hefir látið að vilja þeirra i. En ef jafnaðarmenn koma með vantraust á stj., þá skal ekki standa á mér að greiða því atkv. Það er á valdi þess flokks að sýna, hvort ég stend við þessi orð mín. En jafnaðarmenn kunna ráð við öllu. Þeir beita þá rómi sínum í stað sannfæringar, eins og hv. þm. Ísaf. gerði.