13.02.1930
Efri deild: 21. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 311 í C-deild Alþingistíðinda. (621)

92. mál, útflutningsgjald af síld

Flm. (Erlingur Friðjónsson):

Ég hafði búizt við því, að sú n., sem tæki þetta mál til athugunar, íhugaði till. mínar frá síðustu tveim þingum um að jafna lækkun útflutningsgjaldsins á síldinni niður á afurðir síldarbræðsluverksmiðjanna, ef hún sér ekki aðra hentugri leið í málinu. Hinsvegar virðist mér óeðlilegt, að tekið sé hærra gjald af síld en fiski, þó svo verði með þessu móti.