16.04.1930
Efri deild: 82. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2451 í B-deild Alþingistíðinda. (670)

Afgreiðsla þingmála

Jón Baldvinsson:

Ég vil leyfa mér að mælast til þess við hæstv. forseta, að hann nú þegar að afloknum þessum fundi setji annan fund til þess að afgreiða hafnarmálin og önnur mál, t. d. tóbakseinkasölumálið. Ég treysti því, að hv. framsóknarmenn neiti ekki um afbrigði fyrir þessi nauðsynjamál.