26.02.1930
Neðri deild: 37. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2459 í B-deild Alþingistíðinda. (703)

Þingvíti

Pétur Ottesen:

Mér sýnist ekki vera færri mál á dagskrá í dag en í gær. Hefði ég ekki haldið, að það væri starf hæstv. forseta að skera úr því, hver þingmál væru öðrum merkari, en nú sýnist hann ætla að taka sér það vald, með því að telja málin í dag svo ómerkileg, að ekki þurfi nema hluta hv. deildar til að afgreiða þau.