14.04.1930
Neðri deild: 80. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 325 í C-deild Alþingistíðinda. (734)

359. mál, bryggjugerð í Borgarnesi

Sigurður Eggerz:

Mig langar til að spyrja hv. þm. Mýr. um það, hvort hér sé verið að keppa að því yfirleitt, að hafnarnefndum sé veitt leyfi til að ráða allri uppskipun og hvort það sé hugsunin að læða þessu inn hér, og færa sig svo upp á skaftið og búa til eina allsherjareinokun í þessu efni.