25.01.1930
Efri deild: 5. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1170 í B-deild Alþingistíðinda. (856)

9. mál, flugmálasjóður Íslands

Halldór Steinsson:

Hér er verið að ræða um að leggja skatt á eina tegund sjávarafurða, og ég veit ekki betur en að öllum slíkum málum hafi hingað til verið vísað til fjhn. Geri ég það að till. minni um þetta mál.