22.02.1930
Neðri deild: 34. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1177 í B-deild Alþingistíðinda. (879)

9. mál, flugmálasjóður Íslands

Sveinn Ólafsson:

Það eru aðeins nokkur orð til svars hv. þm. Borgf. Ég efast ekki um, að hann sé svo vel að sér í talnafræði, að hann geti margfaldað tunnufjölda síldarframleiðslunnar með 10 og séð þar af, hversu hár þessi flugferðaskattur muni verða. Að öðru leyti er óþarft að eyða tíma í umr. um þetta einfalda mál.