19.03.1930
Neðri deild: 57. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 235 í B-deild Alþingistíðinda. (92)

1. mál, fjárlög 1931

Forseti (BSv):

Þar sem veður taka nú mjög að versna og búast má við, að þeir þm., sem harðgerðastir eru, séu nú þegar komnir á þingfund, en hinsvegar svo fáir mættir, að varla má telja fundarfært, tel ég rétt að bera það undir deildina, hvort fundinum skuli haldið áfram eða ekki.