20.03.1930
Neðri deild: 58. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 250 í B-deild Alþingistíðinda. (99)
1. mál, fjárlög 1931
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Það eru aðeins örfá orð út af þremur af þeim brtt., sem fram hafa verið bornar nú.
Fyrst og fremst er það þá brtt. IV. á þskj. 302, frá hv. þm. Dal. Það er rétt, sem hv. þm. gat um, að stjórnarráðið hefir ákveðið, að vegagerðinni frá Dalsmynni vestur í Dali verði lokið á fyrri hluta ársins 1931, ef ekki verða sérstakar ástæður því til fyrirstöðu, svo sem mannekla eða eitthvað slíkt. Þó er ekki gert ráð fyrir, að fjárveitingin til þessa vegar í fjárlögum þessa árs og þess næsta muni nægja til að ljúka við hann, heldur er ætlunin, að fjárveitingin skiptist á 3 ár. En það á að nota það, sem veitt verður í fjárl. fyrir 1932, árið 1931, og er slíkt algengt. Það mun því óþarft að flytja þá brtt., sem hv. þm. Dal. ber fram um þetta efni, nema því aðeins, að gert sé ráð fyrir þeim möguleika, að á næsta ári verði annar atvmrh. tekinn við völdum, sem ekki er eins velviljaður Dalsmönnum og ég. Verður hv. þm. Dal. að ráða það við sig sjálfan, hvort hann vill styðja að því, að svo verði.
Þá er brtt. XI. á þskj. 302, frá hv. þm. N.-Þ. Samkv. varatill. við hana er farið fram á, að fjárveiting til nýrra vita hækki um 15 þús. kr., sem gangi til byggingar Höfðavita við Raufarhöfn. Ég vil því geta þess, að samkv. viðtali við vitamálastjóra hefir stj. áformað, að vitinn við Raufarhöfn skuli byggður fyrir það fé, sem ætlað er til nýrra vita í fjárlfrv., eins og það er nú. Ég hefi að vísu ekki ákveðna áætlun um hinn vitann, sem ákveðið er að reisa á næsta ári, en búizt er við að fjárveiting fjárlfrv. hrökkvi fyrir tvo vita. Lofa ég því fyrir hönd stj., að Höfðaviti. verði reistur fyrir það fé, sem þegar stendur í fjárlfrv., og beini jafnframt þeirri ósk til hv. þm. N.-Þ., að hann taki brtt. sína aftur.
Að síðustu er það brtt. frá hv. þingmönnum Rang. um fjárveitingu til rannsókna á vatnasvæði Þverár og Markarfljóts.
Ég vil mæla hið bezta með því, að þessi till. sé samþ. Verk þetta er byrjað, og má ekki hætta við það fyrr en því er lokið. Það var aðeins af vangá stj., að þessi fjárveiting féll niður af fjárlagafrumvarpinu.