28.03.1931
Neðri deild: 36. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 617 í C-deild Alþingistíðinda. (1072)
23. mál, bygging fyrir Háskóla Íslands
Magnús Guðmundsson:
Hæstv. ráðh. vildi líkja þessu frv. við hafnarlögin, en ég vil benda á, að þar er ekki tekið fram, að það megi ekki hefja framkvæmdir fyrir ákveðinn tíma, en hitt er rétt, að ekki er ákveðið hvenær, en það sem ég er á móti, er það, að ekki megi hefjast handa fyrr en 1934, jafnvel þó fé væri fyrir hendi. Það gleður mig að heyra, að hæstv. ráðh. segir, að hann hefði ekkert á móti því, að þessu væri breytt eitthvað, mér finnst réttara að orða það svo, að stj. væri heimilt að hafa reist bygginguna 1940. Ég á erfitt með að trúa því, að þurfi þriggja ára undirbúning, þó auðvitað þurfi talsverðan tíma, því þó kröfur komi frá háskóladeildunum, þá þarf ekki mörg ár að rannsaka þær.
Hæstv. ráðh. segir, að það sé eðlilegt, þótt krafizt sé teikningar, þegar um litlar byggingar er að ræða. Það er fjarri allri skynsemi, að ekki þurfi eins teikningu að stórri byggingu sem lítilli, en ef það er rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að enginn vissi, hvernig byggingin ætti að vera, þá er undarlegt að segja, að hún megi ekki kosta nema 600 þús. kr. Mér þykir upphæðin mjög lág og hygg það muni sýna sig, að hún er allt of lág.
Mér skildist á hv. 1. þm. Reykv., að hann væri talsvert ánægður með frv., hann kvaðst eygja markið framundan, en ég sé það ekki. Mér finnst allt bundið svo römmum skorðum í frv., að álitamál sé, hvort nokkuð vinnst.
En að síðustu vil ég geta þess, að ég tel, að þetta frv., þótt að lögum verði, hafi enga aðra þýðingu en þá, að hreyfa dálítið við málinu. En eins og það er orðað nú, gæti það óneitanlega orðið til þess að fresta málinu, að minnsta kosti engu að síður en flýta því.