04.03.1931
Neðri deild: 15. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í C-deild Alþingistíðinda. (1133)

8. mál, vitagjald

Frsm. (Halldór Stefánsson):

Um þetta mál er sama að segja og um síðasta frv. (breyt. á l. um aukatekjur ríkissjóðs), að í því felst sú breyting ein — að kalla má — að festa gengisviðaukann. Jafnframt eru lögin, sem snerta þetta gjald, tekin saman í eina heild. Ég legg til, að frv. gangi sem greiðast til 3. umr.