11.03.1931
Neðri deild: 21. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í C-deild Alþingistíðinda. (1167)

8. mál, vitagjald

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég ætla ekki að taka þátt í deilum út af brtt. sjútvn. á þskj. 127. En ég vil leyfa mér að benda á, að mér virðist þetta mál bera ekki eins að og vera ber. mér virðist þessi till. ekki eiga heima í sambandi við þetta frv. Ég skal gera grein fyrir því. Í þessari d. í fyrra var borin fram till. um miðunarvita. Út af þessu var skipuð n. manna með sérþekkingu á þessu sviði til þess að athuga þetta. N. skilaði áliti sínu rétt í þingbyrjun. Sjútvn. hefir fengið frv. frá þessum sérfræðingum, frv. um stjórn vitamálanna. Þar var þetta tekið til athugunar. Sjútvn. mun ætla að fallast á till. sérfræðingan. Þar eiga þessi deilumál heima.