08.04.1931
Efri deild: 41. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í B-deild Alþingistíðinda. (118)
13. mál, tilbúinn áburður
Frsm. (Páll Hermannsson):
Sú breyt., sem hv. Nd. hefir gert á frv. þessu, er nokkurnveginn samskonar og brtt., sem meiri hl. landbn. hér bar fram við frv., en felld var hér í þessari hv. deild.
Brtt. fór fram á það, að heimilað væri að styrkja landflutning áburðar fyrir vegalengdir umfram 30 km. Hv. Nd. hefir samþ. að styrkja flutning, sem fer fram úr 35 km. Hinsvegar lögðum við til hér að hækka álagninguna úr 2% upp í 4%, en hv. Nd. hefir samþ. að hækka álagninguna upp í 3%.
Aðrar breytingar hafa ekki verið gerðar í hv. Nd., og eins og að líkum ræður, getur meiri hl. landbn. vel fellt sig við, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir nú.