21.02.1931
Neðri deild: 6. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í C-deild Alþingistíðinda. (1286)

1. mál, fjárlög 1932

Gunnar Sigurðsson:

Ég tel sjálfsagt, að öllum þingræðum verði útvarpað svo fljótt sem við verður komið. Það mundi verða til þess, að menn töluðu styttra og vönduðu betur ræðurnar. En hvað sem því líður, þarf enginn að búast við því, að útvarpið verði nokkurntíma alveg hlutlaust, hvaða stjórn, sem situr að völdum.