01.04.1931
Neðri deild: 39. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í C-deild Alþingistíðinda. (1335)
35. mál, lendingarbætur á Eyrarbakka
Forseti (JörB):
Ég skal geta þess í sambandi við þessi hafnarlög, að samkomulag hefir orðið með flm. frv. um þetta mál, og eins um frv. um hafnargerðir á Akranesi, Sauðárkróki og Dalvík, og með sjútvn., um að láta þessi frv. ganga til 3. umr., án þess að bornar séu upp þær brtt., sem fyrir liggja, og þessir aðilar hafa þá fallizt á að láta málin halda áfram að sinni umræðulaust, en brtt. biða til 3. umr.