30.03.1931
Neðri deild: 37. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1074 í C-deild Alþingistíðinda. (1413)

194. mál, þingmannakosning í Reykjavík

Á 37. fundi í Nd., 30. marz, þá er lýst hafði verið í fundarlok dagskrá næsta fundar skýrði forseti frá, að sér hefði borizt frá 6 deildarmönnum (HV, SÁÓ, HG, MJ, JÓl, ÓTh) svo hljóðandi áskorun:

„Samkvæmt 43. gr. þingskapa Alþingis óskum við undirritaðir alþingismenn þess, að á morgun verði tekið fyrir sem fyrsta mál á dagskrá í neðri deild frv. til l. um breyt. á l. nr. 11, 18. maí 1920, um þingmannakosning í Reykjavík (þskj. 194) og annað mál á dagskrá frv. til l. um virkjun Efra-Sogsins (þskj. 283)“.

Í byrjun 38. fundar í Nd., næsta dag, lét forseti fram fara atkvgr. um kröfuna, og var samþ. að breyta dagskrá samkv. henni með 14:11 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu

já: MG, MJ, ÓTh, PO, SE, SÁÓ, EJ, HG. HR, HV, JJós, JAJ, JÓ1, JS.

nei: LH, SvÓ, TrÞ, ÞorlJ, BSv. BSt, BÁ, GunnS, HStef. IngB, JörB.

Þrír þm. (MT, ÁÁ, HJ) fjarstaddir.

1419

Samkv. þessum úrslitum var frv. tekið á dagskrá sem 1. mál til l. umr.

Frv. of seint fram komið. — Deildin leyfði með 14:5 atkv., að það yrði tekið til meðferðar.