13.04.1931
Neðri deild: 45. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1097 í C-deild Alþingistíðinda. (1449)

194. mál, þingmannakosning í Reykjavík

Jón Auðunn Jónsson:

Mér finnst það einkennilegt, ef þessi till. getur komið til greina. Á sama hátt gæti hér komið fram brtt. við frv. um hafnargerð á Akranesi og væri því breytt þannig, að höfn yrði gerð í Hnífsdal. Mér finnst þetta ekki geta komið til mála.