25.02.1931
Efri deild: 9. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1190 í C-deild Alþingistíðinda. (1671)

36. mál, einkasala á tóbaki og eldspýtum

Jón Baldvinsson:

Ég vil aðeins minna hv. 1. landsk. á það, að hér hefir engin till. verið gerð um það að nema úr gildi tollhækkun þá, sem gerð var á tóbakinu 1925. Hér er um það að ræða, að heildsöluhagnaðurinn á tóbaki lendi í ríkissjóðnum, en ekki hjá einstökum mönnum.