23.02.1931
Efri deild: 7. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í B-deild Alþingistíðinda. (17)
29. mál, utanfararstyrkur presta
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Þetta frv. er, eins og hin frv., sem ég hefi flutt á þessu þingi, samið af kirkjumálanefnd. Þetta mál hefir áður verið til umr. hér í d., og sé ég því ekki ástæðu til þess að fjölyrða um það, fyrr en þá við 2. umr. — Ég býst helzt við, að þetta frv. ætti að fara til allshn. (Nokkrir þm.: Menntamálanefndar). Já, eða þá það.