06.03.1931
Efri deild: 17. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1211 í C-deild Alþingistíðinda. (1719)

76. mál, vélstjóraskóli á Akureyri

Flm. (Erlingur Friðþjónsson):

Eins og hv. deild er kunnugt, er það venja að vísa öllum skólamálum til menntamn., en ég benti á ástæðuna til að vísa þessu máli til sjútvn. Sé um það að ræða, að málinu sé vísað til einhverrar annarar n. en sjútvn., þá tel ég sjálfsagt, að það fari til menntmn. Þetta er ekki stærra fjárhagsatriði en mörg önnur skólamál.