24.03.1931
Efri deild: 32. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1305 í C-deild Alþingistíðinda. (1799)

241. mál, innheimta meðlaga

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég vil aðeins óska þess, að þetta mál fái sömu afgreiðslu og 3. mál (hjúskapur, ættleiðing og lögráð), að því verði vísað til 2. umr. og allshn., sem síðan leiti umsagnar utanríkismálan. um málið.