13.03.1931
Neðri deild: 23. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 850 í C-deild Alþingistíðinda. (1972)
117. mál, útsvör
Flm. (Jón Ólafsson):
Hv. þm. Borgf. var að tala um, að með þessu frv. væri verið að fara inn á nýjar brautir, og virtist standa mikill stuggur af því. En ég veit ekki betur en að alltaf sé verið að fara inn á fleiri og fleiri nýjar brautir, eftir því sem þörf gerist og þjóðfélaginu vex fiskur um hrygg. Hér getur ekki heldur talizt, að um nýja braut sé að ræða, heldur er aðeins bætt einu nýju atriði inn í löggjöf, sem þegar er til.
Mér þótti nú fara að hvessa í hv. þm., þegar hann fór að spá því, að samþykkt þessa frv. myndi leiða til þess, að farið yrði að leggja útsvör á sparisjóðsinneignir manna í bönkum í Reykjavík. Ég veit, að hv. þm. er svo vitur maður og gætinn, að hann veit vel, að til slíks kemur aldrei. Til slíks þyrfti samþykki þingsins, og ég vona, að hv. þm. verði þá svo vel á verði ásamt mér og fleirum, að slíkt gengi ekki greiðlega. En þegar sparifé, sem til bæjarins kemur, er lánað fyrir okurvexti, þótt óbeinlínis sé, vil ég láta skattleggja það sem hverjar aðrar óeðlilegar tekjur.