21.03.1931
Neðri deild: 30. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í B-deild Alþingistíðinda. (198)

116. mál, heimild til að veita Jóni Þorleifi Jósefssyni vélstjórnarskírteini

Frsm. (Jón Ólafsson):

Ég hefi litlu við að bæta það, sem ég sagði við 1. umr. þessa máls. N. hefir átt tal við skipaskoðunarmann ríkisins, sem líka er vélfræðingur, og mælir hann með frv. N. álitur einnig sjálfsagt, að þessum manni verði veitt þessi réttindi, þar sem hann hefir sýnt öll skilríki fyrir því, að hann sé til þessa starfa hæfur.