10.03.1931
Neðri deild: 20. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 118 í B-deild Alþingistíðinda. (263)

65. mál, kirkjuráð

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég hefi ekki annan formála fyrir þessu frv. en að vísa til Alþt. 1930 A., þskj. 279. Þá var frv. borið fram af menntmn. í sömu mynd með grg. mþn. í kirkjumálum. Frv. fer í þá átt, að koma meira lýðræðissniði á kirkjumálin, á þann hátt, að stofnað verði ráð við hlið biskups, og hafi það ráðgefandi vald. Óska ég, að frv. verði, að þessari umr. lokinni, vísað til 2. umr. og menntmn.