30.03.1931
Neðri deild: 37. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í C-deild Alþingistíðinda. (311)

123. mál, dragnótaveiðar

Forseti (JörB):

Ég vil benda hv. þm. á, að mörg frv. eru jafngömul þessu, og jafnvel eldri, og ekki komin enn til 1. umr. En til þess að greiða fyrir frv. skal ég taka það með fyrstu málunum á dagskrá á morgun.

Síðar á sama fundi var frv. tekið til 1. umr.