07.03.1931
Neðri deild: 18. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í C-deild Alþingistíðinda. (338)
89. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Reykjavíkur
Flm. (Héðinn Valdimarsson):
Þetta frv. hefir legið hér áður fyrir þinginu, en þá ekki náð fram að ganga. Er hinn sami vilji á bak við það sem fyrr frá hálfu Reykvíkinga, sem er sá, að fá enda bundinn á þetta mál, með því að jarðirnar Þormóðsstaðir og Skildinganes í Seltjarnarneshreppi, ásamt verzlunarstaðnum Skildinganesi við Skerjafjörð, verði lagðar undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur. Fólkinu fjölgar mjög á þessum slóðum, og ég hygg, að ég segi ekki of mikið, þó að ég segi það, að meiri hl. íbúanna á þessum stað kjósi fremur að heyra undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur, enda er það hagkvæmast fyrir báða aðilja, að þetta skot út úr hreppnum, sem er umlukt af Reykjavík á báða bóga, heyri undir Reykjavík. Eins og nú er, er lögreglueftirlit og tollgæzla sameiginleg fyrir Reykjavík og þennan hluta Seltjarnarneshrepps, en ýmis mál fleiri þyrftu að vera það, t.d. brunamál og skipulag á byggingum.
Ég geri ráð fyrir, að þetta mál upplýsist betur áður en 2. umr. um það fer fram, og mun því ekki hafa þessi orð fleiri. Að lokinni umr. leyfi ég mér að vænta þess, að málinu verði vísað til allshn.