30.03.1931
Neðri deild: 37. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í B-deild Alþingistíðinda. (422)

Afgreiðsla þingmála

Haraldur Guðmundsson:

Þar sem hæstv. forseti hefir lýst yfir því, að fundinum verði frestað til kl. 81/2 í kvöld, vil ég leyfa mér að benda hæstv. forseta á það, að þetta er í annað sinn, sem hann frestar fundi til 81/2 á mánudagskvöldi, en þar sem það er fastur flokksfundartími hjá Alþýðuflokknum, vænti ég þess, að hæstv. forseti geri breyting á þessari skipan og sliti fundinum. (Margar raddir: Sjálfstæðisflokkurinn hefir einnig flokksfundi á þessum tíma).