08.04.1931
Neðri deild: 41. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í B-deild Alþingistíðinda. (426)
Afgreiðsla þingmála
Sigurður Eggerz:
Ég vil algerlega mótmæla því, að ég hafi synt alvöruleysi eða tómlæti um þetta mál, hvorki við atkvgr. né aðra meðferð málsins hér í d. Sama hygg ég, að megi segja um marga aðra hv. þdm. Ég tek því alls ekki á móti neinum þvílíkum ásökunum, hvorki frá forseta né öðrum; ég þykist ekki hafa til slíks unnið, og vísa umsvifalaust frá mér þesskonar ákúrum.