30.03.1931
Neðri deild: 37. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 473 í C-deild Alþingistíðinda. (880)

20. mál, búfjárrækt

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég vil þakka hv. n. fyrir afgreiðslu sína á þessu máli nú, og vil ég vona, að ekki verði slíkar deilur um frv. nú og við fyrri umr. málsins. Hefir nú orðið samkomulag milli mín og n. og hafa víða fundizt millileiðir, er báðir aðiljar gátu vel við unað.

Ég sé því enga ástæðu til þess að tala um málið að þessu sinni, en vil aðeins óska þess, að hv. d. afgreiði frv. með þeim brtt., sem n. hefir lagt til.