18.03.1931
Neðri deild: 27. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 527 í C-deild Alþingistíðinda. (945)
27. mál, kirkjur
Sveinn Ólafsson:
Ég vildi aðeins segja örfá orð út af athugasemdum hv. 1. þm. Reykv. um brtt. okkar hv. þm. V.-Ísf. á þskj. 171.
Ég skil vel, að hv. þm. leggi nokkra áherzlu á, að ákvæði frv. um kirkjunefndir séu samþykkt, þar sem hann virðist trúa því, að þær geti orðið kirkjustarfseminni að góðu liði.
En ég get sagt það fyrir hönd okkar flm. brtt., að við álitum, að þessar nefndir yrðu fremur til ógagns en gagns. Verksvið sóknarnefnda er alls ekki svo viðtækt eða erfitt, að þær geti ekki víðast hvar annast það starf, sem kirkjunefndunum er ætlað eftir frv. Og það eru störf, sem sóknarnefndirnar hafa haft með höndum, og sem þær munu gegna framvegis, ef þau eru ekki af þeim tekin.
Að búa til þessar tvær hliðstæðu stofnanir í hverri sókn, sem frv. gerir ráð fyrir, finnst mér eins og að setja hverja silkihúfuna ofan á aðra. Nefndirnar mundu oft vera í vafa um það, hvaða störf heyrðu undir hvora þeirra, og sóknarnefndarmennirnir mundu verða áhugaminni, ef settar væru þannig aðrar nefndir inn í þeirra verkahring. Það má vera, að í stórum söfnuðum, eins og t. d. hér í Reykjavík, ætti við að hafa einhverja aukastofnun utan sóknarnefndarinnar, til þess að vinna að kirkjulegum störfum. En til þess munu þá veljast menn, sem sérstakan áhuga hafa á því efni, þó að ekki sé lagaákvæði um það sett.
Ég vil því mælast til þess, þrátt fyrir mótmæli hv. 1. þm. Reykv., að ekki verði samþ. að lögbjóða tvennskonar sóknarnefndir. Ég fann að vísu, að hv. þm. vildi reyna að flokka störfin milli þessara tveggja nefnda, því að það er ekki greinilega gert í frv. Hann virðist aðallega ætla sóknarnefndunum að fást við fjármálin. En ég vil benda á það, að í lögum um skipun sóknarnefnda og héraðsnefnda frá 1907 er gert ráð fyrir ýmsum öðrum störfum, sem sóknarnefndunum er ætlað að inna af hendi, og jafnvel sum þau störf, sem í frv. þessu eru ætluð kirkjunefndum. Til dæmis eiga sóknarnefndir eftir þeim lögum að sjá um meðhjálparastörfin o. fl.
Ég get hugsað mér, að sumir sóknarnefndarmenn tækju sér það til og jafnvel hættu starfi sínu, ef þeir væru að nokkru leyti settir út úr sínum fyrri verkahring með því að settar væru nýjar nefndir til höfuðs þeim.