14.08.1931
Neðri deild: 29. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í D-deild Alþingistíðinda. (1170)

13. mál, milliþinganefnd um kjördæmaskipun

Héðinn Valdimarsson:

Ég vil geta þess, að Alþfl. á engan þátt í þessu samkomulagi, sem orðið hefir um skipun nefndarinnar og sem hæstv. forsrh. talaði um. Þær till., sem Alþfl. bar fram um það, á hvaða grundvelli nefndin skyldi starfa, voru felldar, enda þótt vitanlegt sé, að meiri hl. þjóðarinnar sé þeim fylgjandi. Þess vegna munum við greiða atkv. gegn þessari till.