11.08.1931
Neðri deild: 26. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1001 í B-deild Alþingistíðinda. (1298)

55. mál, byggingar- og landnámssjóður

Bjarni Ásgeirsson:

Landbn. hefir flutt hér brtt. á þskj. 260, sem ekki er nein efnisbreyt., en bætir úr vangá, sem orðið hafði, þegar málið var flutt. Allur sá liður, sem hér ræðir um, hafði fallið niður, í stað þess að bæta átti við hann aths. á þskj. 145. N. var sammála um að bæta úr þessu, og þess vegna tókum við þetta, og er þá málið komið í það horf, sem upprunalega var ætlað.