20.08.1931
Efri deild: 34. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1019 í B-deild Alþingistíðinda. (1354)

113. mál, verkamannabústaðir

Jón Baldvinsson:

Ég vil mælast til, að þetta frv. verði látið ganga áfram nefndarlaust, því að það er mikið undir því komið, að það komist í gegn nú, þar sem byrjað er á byggingum víða á landinu. Þetta frv. er komið frá hv. Nd. og var þar í allshn., en myndi komast einnig í gegnum þessa hv. deild, ef það verður ekki látið fara til nefndar.