19.08.1931
Neðri deild: 33. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1088 í B-deild Alþingistíðinda. (1499)
18. mál, einkasala ríkisins á tóbaki og eldspýtum
Héðinn Valdimarsson:
Ég veit, að hæstv. forseti neitar mér ekki um orðið núna, þó hann hefði gert það í upphafi þings. (Margir þm: Af hverju ekki núna eins?). Vegna þess, að það brennda barn forðast eldinn.
Því, sem hv. þm. G.-K. sagði um þetta fulltrúaráð Alþýðuflokksins, þarf ég ekki að svara öðru en því, að það er ekki til, og getur hv. d. af því dæmt áframhaldið af ræðu hv. þm.
Þar sem hv. þm. talaði um, að Alþýðuflokkurinn væri báðum hinum flokkunum ótrúr, þá segir það sig sjálft, hver afstaða hans er til þeirra. Hann hefir aldrei lofað þeim neinum trúnaði, heldur andstöðu. Við munum vinna að því, að Alþýðuflokkurinn nái meiri hl. í landinu með sinni stefnu.
En eftir að hv. þm. G.-K. er kominn í hið nána samband við Framsóknarflokkinn, sem raun er á, er bezt fyrir hann að reyna að vera þeim flokki trúr, sem hann ætlar sér að hafa eitthvað upp úr samvinnu við.