24.08.1931
Neðri deild: 41. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í D-deild Alþingistíðinda. (1534)

449. mál, kartöflukjallari og markaðsskáli

Flm. (Bjarni Ásgeirsson):

Eftir þá aths., sem hv. þm. V.-Húnv. fékk eftir sína stuttu ræðu, hélt ég, að hæstv. forseti myndi standa upp og lýsa því yfir, að þetta, sem hv. 3. þm. Reykv. var að tala um, kæmi málinu ekki við.

Hv. 3. þm. Reykv. vil ég segja það, að margsannað er með rökum, að í því máli, sem hann nefndi, hefir enginn dómur fallið af hálfu þjóðarinnar.