20.08.1931
Neðri deild: 34. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1165 í B-deild Alþingistíðinda. (1594)
27. mál, einkasala á síld
Ásgeir Ásgeirsson:
Þar sem hv. frsm. er ekki við, en hafði ætlað að flytja skriflega brtt., get ég í hans stað flutt till.
Við höfðum í n. komið okkur saman um, að aðalfundur skyldi kosinn af útgerðarmönnum og sjómönnum, en við sáum, að örðugt var að finna leið til þess að sjómenn kæmu við kosningunni. Ég man, að ég tók það fram í n., að ef meiriháttar vandkvæði virtust á því við umr., og annað væri frekara til samkomulags, þá myndum við eins geta fallizt á, að Alþýðusambandið kysi þessa fulltrúa. Af því að till. hv. þm. Ísaf. er komin fram og hann hefir mælt fyrir henni, og með tilliti til þess, sem aðrir ræðumenn hafa sagt um málið, berum við fram svofellda brtt., við hana: Að í stað orðanna „Meiri hl. fulltrúa Alþýðusambandsins skal kosinn úr hópi sjómanna“ komi: Fulltrúar Alþýðusambandsins skulu allir kosnir úr hópi sjómanna, og skulu 2 vera af Suðurlandi, 2 af Vesturlandi, 2 af Norðurlandi og 1 af Austurlandi.
Við getum orðið samflota öðrum hv. þm. í þessu máli, af því að við teljum, að þessu fyrirtæki sé bezt borgið með því að draga það sem mest út úr stjórnmálunum, og meira en verið hefir, og að hagsmunum þeirra, sem eiga hér hlut að máli, sé bezt komið með því að láta þá annast þá sjálfa.