24.07.1931
Neðri deild: 11. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í D-deild Alþingistíðinda. (1674)
21. mál, sala viðtækja
Flm. (Haraldur Guðmundsson):
Þessi þáltill. fer fram á að fela stj. að hlutast til um við stj. viðtækjaverzlunarinnar, að viðtæki verði framvegis seld með afborgunum. Eins og verðlag er á þessum tækjum, er öllum þorra manna ofvaxið að eignast þau á annan hátt. Mér er kunnugt um, að á Seyðisfirði verða menn að nota 500 kr. tæki til að hafa gagn af útvarpsstöðinni í Reykjavík. Það er auðsætt, að fáir geta greitt þá upphæð í einu lagi, enda þótt þeim væri það kleift á 2 árum. Mig furðar satt að segja á því, að viðtækjaverzlunin skuli ekki hafa tekið þetta fyrirkomulag upp hjá sjálfri sér, þar sem enginn vafi er á, að það myndi auka sölu á viðtækjum stórkostlega. Í öðru lagi ber að líta á það, að úr því að almenningur leggur útvarpinu til mikið fé með sköttum og skyldum og því er ætlað að flytja almenningi fróðleik og skemmtun, er gersamlega óverjandi að útiloka menn frá því að njóta þeirra gæða með sölufyrirkomulaginu á tækjunum.
Ég hefi ekki fleiri orð um þetta mál að sinni, en vil minna á það, að áskoranir um þetta efni hafa drifið að Alþingi og stjórninni hvaðanæfa að. Vænti ég því, að hv. d. taki vel í þetta sjálfsagða mál.