21.08.1931
Efri deild: 37. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1174 í B-deild Alþingistíðinda. (1817)
354. mál, laun embættismanna
Jón Baldvinsson:
Þegar ég var að taka saman þetta frv., var ég að hugsa um það, hvort það ætti ekki að framlengja þetta aðeins til ársloka 1932, en eftir því sem ég virti það lengur fyrir mér, fannst mér rétt að fylgja því, að framlengingin koma í kring endurskoðun á launalögunum, eins og gert er ráð fyrir, þegar dýrtíðaruppbótin ætti að falla niður. Það er misskilningur hjá hæstv. ráðh., að þó þessi lög standi, þá sé viss hluti þjóðarinnar hafinn yfir dýrtíðina, því það er svo, að dýrtíðaruppbót á laun starfsmanna og embættismanna landsins er reiknuð út með tilliti til verðlags á vörum, þó um skeið hafi verið borgað hærra en sá útreikningur benti til, eftir fyrirmælum þingsins, og það er einmitt með tilliti til sérstaks verðs á framleiðsluvörum landsins. Svo launagreiðslan fer nokkuð eftir því, hvernig verðlag reynist á hverju hausti, þegar dýrtíðaruppbótin er reiknuð út.
Ég sé ekki ástæðu til þess að vera að samþ. þessa till., því að laun embættismanna og annara starfsmanna lækka af sjálfu sér, ef fylgt er út í æsar lögunum um dýrtíðaruppbót og framleiðsluvörur okkar halda áfram að falla í verði, því svo mikið tillit er tekið til þess við útreikning dýrtíðaruppbótarinnar.