18.07.1931
Neðri deild: 4. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í C-deild Alþingistíðinda. (1918)
10. mál, vatnasvæði Þverár og Markarfljóts
Atvmrh. (Sigurður Kristinsson):
Þetta frv. var lagt fyrir þessa hv. d. á síðasta þingi og var þá samþ. við 2. umr. Er það nú lagt fyrir hv. deild að nýju án nokkurra teljandi breytinga. Vil ég aðeins vísa til aths. þeirra, er fylgdu frv. á síðasta þingi, og leggja til, að því verði vísað til 2. umr. og hv. samgmn. að lokinni þessari umr.