22.08.1931
Efri deild: 38. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1222 í B-deild Alþingistíðinda. (1940)
26. mál, hafnargerð á Akranesi
Frsm. meiri hl. (Ingvar Pálmason) [óyfirl.]:
Ég verð ekki langorður. Það er aðeins vegna þess, að hv. 1. þm. Reykv. vildi láta skína í, að ákvæðið um lántöku fyrir milligöngu Landsbankans væri sáralítils virði, sem ég vildi taka fram, að þetta ákvæði tryggir það, að enginn annar getur með heimildum farið að hjóða þetta út.
En að því er snertir brtt. við frv. um höfn á Dalvík, skal ég geta þess, að ég hefi samið hana að tilmælum vitamálastjóra. Hann taldi ákvæðið um hafnarmerkin mjög óheppilegt. Nú gefur að skilja, ef hafnarmerkin eru ákveðin með lögum, að það er ekki hægt að breyta þeim með reglugerð. Þess vegna er sjálfsagt að hafa þetta óbundið. Sé ég svo ekki ástæðu til að fjölyrða meira um þetta, þar sem það virðist vera samkomulag um brtt.