17.08.1931
Efri deild: 31. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1258 í B-deild Alþingistíðinda. (2057)

64. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Reykjavíkur

Jón Þorláksson:

Ég hafði einmitt í huga að koma með brtt. við þetta frv., en gat það ekki, meðan óafgert er um brtt. hv. 1. þm. Reykv. Fyrr get ég ekki orðað mína brtt. Vil ég því mjög mælast til, að þessi brtt. verði ekki tekin aftur til 3. umr.