23.07.1931
Neðri deild: 10. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í C-deild Alþingistíðinda. (2153)
43. mál, tekju- og eignarskattur til atvinnubóta
Jón Auðunn Jónsson:
1) . . . . að það verði annað en Reykjavík og 2 eða 3 aðrir kaupstaðir, sem njóta góðs af þessum atvinnubótum frv. Ég býst við, að smærri kauptún og sjávarþorpin fái að vera hjálparlaus, þó þau þurfi alveg eins og sízt minni hjálpar við en stærri kaupstaðirnir.
Ég man það, að það var mikið talað um þörf fyrir atvinnubætur í Hafnarfirði hér á árunum, á sama tíma sem Hafnarfjörður hafði yfir að ráða margföldum atvinnutækjum í hlutfalli við íbúatölu á móts við öll sjávarþorpin á Vestfjörðum.
Ég er sammála hv. 4. þm. Reykv. um það, að framkvæmd laganna eigi að vera þar, sem kunnugleikinn er mestur, en það er hjá sveitar- eða bæjarstjórnum. Hitt, að það sé hlaupið undir bagga með bæjar- og sveitarstjórnum til að auka og bæta atvinnuskilyrði, tel ég alveg sjálfsagt. Ég hygg, að bezta leiðin til þess sé að styrkja atvinnuvegina, bæði til sjávar og sveita.
Eins og hv. 4. þm. Reykv. gat um, hefir það orðið ofan á, að fjvn. þessarar hv. d. leggur til, að aukið sé við fjárveitingar til verklegra framkvæmda um ½ millj. kr. Ég er samþykkur því, en vil, að framkvæmdum sé hagað þannig, að nálega ekkert sé keypt til þeirra af útlendu efni. Atvinnubót, sem er mest vinna, er það, sem kemur að beztu gagni og gefur fólkinu tekjur.
Hv. 1. þm. Skagf. segir, að Sjálfstæðisflokkurinn sé kyrrstöðuflokkur. Það er ekki í fyrsta skipti nú, sem þetta hefir heyrzt, en það hafa fáir orðið til að trúa hví. Andstæðingarnir halda þessu að vísu stöðugt fram, en því trúir enginn, sem hefir nokkra minnstu þekkingu á atvinnulífi þjóðarinnar; Þeir, sem hafa þekkingu á atvinnuvegum þjóðarinnar, vita það, að í þessum stærsta þingflokki landsins eru langflestir stærstu atvinnurekendur og mestu framkvæmdamenn (StgrS: Þingflokki?) landsins. Stærsta landsmálaflokki er víst réttara að segja, þó hitt mætti til sanns vegar færa, þar sem hann ætti að vera stærsti þingflokkur um leið. — En þó þessir menn, framkvæmdamennirnir, séu duglegir, má vel svo fara, að þeir verði að draga saman seglin og jafnvel, að margir muni falla í þeirri baráttu, sem kreppan skapar. En sú barátta verður þeim miklum mun léttari, ef valdhafarnir ausa ekki út fé ríkisins í gáleysi.
Það er ekki ófrjótt mál og ekki ástæðulaust að benda á það, sem liðið er, í þessu sambandi, því ég hygg, að í því efni sem öðrum muni sú þekking duga bezt, sem við fáum af reynslu liðinna tíma. Við ættum að læra af óforsjálni og gapahætti í fjárstjórn ríkisstjórnarinnar undanfarin ár að haga okkur öðruvísi framvegis.
1) Vantar upphaf ræðunnar. — J. A. J.